Þegar aflanum er raðað í gáma er æskilegt að það sé gert með hliðsjón af aldri aflans, þannig að elsti fiskurinn sé í einum gám og yngsti fiskurinn í öðrum. Þannig er mögulegt fyrir starfsmenn fiskmarkaðarins að selja elsta fiskinn fyrst þegar treina þarf sölu á hluta aflans. Þetta þýðir þó að aflinn þarf að vera greinilega dagmerktur og upplýsingum um innihald gámanna þarf að berast til starfsmanna markaðanna.