Fiskiker

Gámafiskur er í dag almennt fluttur út í 460 eða 660 lítra plastkerum, en var á árum áður fluttur út í 70 eða 90 lítra plastkössum eins og sjá má hér

Mikilvægt er að ílát sem notuð eru undir fisk séu hrein og óskemmd, en sérstaklega ber að gæta þess að innri byrði keranna séu heil þar sem einangrunin getur verið sannkölluð gróðrarstía fyrir örverur.  Þegar fiskinum er raðað í kerin þarf að gæta þess að hann raðist rétt, það er að segja að hann sé óundinn og snúi helst kviðnum niður. 

Mikilvægt er að notað sé hæfilegt magn af ís og að kerin séu alls ekki yfirfyllt.  Frekari leiðbeiningar um frágang og geymslu fisks má sjá hér og hér má sjá má hvernig mat á frágangi fisks fer fram.